...
Myndir
MySpace
07.04.2006 01:51:17 / valborg

Nýtt blogg

Ég hef ákveðið að feta í fótspor Mörtu og stofna nýtt blogg á blog.is. Slóðin er

http://valborg.blog.is

Ég treysti á að þið verðið dugleg að kommenta, ég veit að það er smá vesen en þessu verður örugglega kippt í liðinn fljótlega!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 23:05:21 / valborg

draumadagurinn

Já í gær var sko góður dagur og mættu þeir vera fleiri svona. Hann byrjaði þannig að ég vaknaði um ellefuleytið og fékk mér baguette snittur með mozzarella og tómat í morgunmat, því svo heppilega vildi til að mamma var með saumaklúbb daginn áður. Þennan ljúffenga morgunmat snæddi ég yfir nýjasta Sirkus blaðinu meðan sólin skein inn um gluggann. Því næst fór í í semi-nýju sumarfötin mín, ánægð með fínt brúnkukrem og nýlitaðar augabrúnir, og hélt svo af stað í skólann á bílnum sem ég var einmitt nýbúin að þrífa jafnt innan sem utan. Glampandi sól og skemmtileg lög í útvarpinu, akkúrat kominn sá tími þegar allir ömurlegu morgunþættirnir eru búnir.

Í skólanum var mikið partýstuð, dj-ar og læti vegna væntanlegrar Morfískeppni um kvöldið. Allir í miklu djammstuði. Fór bara í tvo tíma og þeir voru frekar þægilegir, þar sem í öðrum var ég bara að búa til aspirín og eitthvað að fikta með spennubreyta í hinum. Þegar ég kom svo heim fékk ég mér smá fegurðarblund og þegar ég vaknaði var ég búin að fá útborgað. Það var gaman. Síðan tók ég mig til fyrir kvöldið og einkar gaman að vera í nýjum fötum og með nýtt dót. Svo lá leiðin niður á Hótel Borg með Mörtu þar sem mamma hennar hélt upp á fimmtugsafmælið sitt. Spilaði Í svörtum fötum fyrir dansi og ekki sakaði opni barinn. Þetta endaði svo með stórskemmtilegu djammi  (eins og sjá má á skrautlegum myndum Kristínar hér á myndasíðunni minni) og var þá góðum degi lokið. Djammið hefði þó getað endað aðeins betur en um það verður ekki nánar rætt hér.


já það var sko svona gaman

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 21:17:04 / valborg

halló halló

Helgin tekin ansi rólega... Vinna föstudag, laugardag og sunnudag og lítið annað gert. Splæsti í rándýra Ecco sandala til að lifa helgina af, þakka þeim fyrir að ég get enn staðið í lappirnar.

En núna er margt framundan til að hlakka til.

  • 4 dagar í næstu útborgun
  • 12 dagar í páskafrí (og þá byrja ég í nýju vinnunni minni á Vegamótum... úúú spennó)
  • 33 dagar í síðasta kennsludag
  • 42 dagar í sumarfrí og þar með er skólagöngu minni í MH lokið...

En ég hlakka mikið til sumarsins og ég ætla rétt að vona að það verði mikil sól og gott veður hérna á klakanum. Sumarátakið er komið í góðan gír og stefni ég á að vera búin að losa mig við eitthvað af spikinu þegar ég fer til Tenerife í ágúst ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 21:38:16 / valborg

áhugamál..

Mig langar svo að eignast eitthvað áhugamál. Finnst orðið eitthvað svo leiðigjarnt að gera ekkert annað en að vinna, læra og sofa, djamma stundum og reyna að fara í ræktina. Alltaf nákvæmlega sama. Einhverjar hugmyndir?

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:22:30 / valborg

Helgarfærslan

Vil byrja á að óska Sif til hamingju með fimmta Íslandsmeistaratitilinn sinn sem hún vann núna um helgina! Til hamingju sæta ;)

Sif að gera góða hluti á sunnudaginn

En helgin var mjög góð í alla staði. Það var semsagt poolmót Regnbogans á laugardaginn en við vorum því miður bara fimm sem mættum og urðum sjö seinna um kvöldið. En það var bara fámennt en góðmennt, allavega skemmti ég mér rosalega vel í poolinu og þetta var besta djamm í langan tíma. Hins vegar brást bæjarferðin all svakalega, það var hörmulega leiðinlegt á Prikinu og svo enduðum við í einhverjum röðum sem við meikuðum svo ekki lengur og fórum heim. Einhverjar myndir komnar inn hjá Möggu og von á einhverjum frá Kristínu!     

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 00:42:50 / valborg

Langt síðan seinast...

Marta var að kvarta yfir bloggleysinu hérna... skelli þess vegna einum pistli inn og svona í lengri kantinum, ef ske kynni að það væri einhver bið í næsta...

Við Tinna og Magga kíktum semsagt í bæinn síðustu helgi sem var nú bara gaman, þótt við værum ef til vill aðeins rólegri en venjulega. Myndir á Möggusíðu (þar sem sést vel hversu sárlega ég þarf að fara í klippingu og augabrúnalitun!!). Talandi um myndir þá tók Kristín stórt framfaraskref í tölvukunnáttu sinni núna í vikunni og setti inn myndir af árshátíðinni okkar inná myndasíðuna mína. Eða af okkur fyrir árshátíðina réttara sagt.

Undanfarið hafa verið miklar framkvæmdir hérna í húsinu, það er verið að búa til tvær íbúðir fyrir neðan og hef ég þurft að þola að vakna við skerandi borhljóð dag eftir dag þegar ég ætla að sofa út. Það er þó furðulegt hvernig maður nær samt að útiloka þessi læti og núna er ég farin að geta sofið þó það sé verið að brjóta niður steinsteypuveggi beint fyrir neðan mig. Núna er svo verið að lakka allar hurðar og gólflista hér í íbúðinni og eru þrír ungir og myndarlegir málarar í því verki. Þeir mæta hérna hálfníu á morgnana og ég á þess vegna eitthvað hálferfitt með að ganga um úldin og nývöknuð eins og ég er vön, svo ég opna bara fyrir þeim og fel mig svo inni í herbergi þar til ég fer út. Ætla nú að reyna að vera aðeins félagslyndari á mánudaginn og að minnsta kosti bjóða þeim góðan daginn...

Var með Ingu og Mörtu núna áðan á leikritinu Hungur, það var bara mjög skemmtilegt. Fór svo með þeim í mína fyrstu Puccini-ferð, þar sem þær eru fastagestir. Það var kósí þótt það væri heldur einmanalegt, það mikið að við vorum einu gestirnir á staðnum. Fengum okkur kvöldsnarl á Devitos áður en ég beilaði heim. En á morgun verður svo djammað almennilega; poolmót Regnbogans... hlýtur að verða gaman ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 21:14:09 / valborg

úps

Tek allt til baka um að vor eða sumar sé á næstunni eftir alla snjókomuna í gærkvöldi!  Breytti þess vegna þemanum í fjólubláan þótt það væri aðallega til að vera í stíl við bakrunninn á bannernum fína sem Bogga bjó til handa mér :D Takk Bogga mín!! :D

En ég, Tinna og Magga erum á leiðinni út  á lífið í kvöld, sjáumst þar :D

v  a   l      b     o        r            g


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 22:46:30 / valborg

hætta að blogga?

Ég veit ekki... er bloggið orðið has-been?  Allavega er ég orðin nánasts uppiskroppa með hugmyndir, þetta blogg mitt er að mestu endurtekningar á því sem ég geri um helgar eða eitthvað babbl um veðrið. Ég tími ekki einu sinni að borga 59kr fyrir skoðanakönnun. Ef ég ætti ennþá myndavél þá mundi ég kannski bara að fara að halda úti myndabloggi. Verður þó einhver bið á myndavélakaupum hér á bæ þar sem ég á nokkur stór útgjöld framundan; nýir íþróttaskór (því mínum var stolið), klipping og augabrúnalitun (því ég er ekki búin að fara í 3 mánuði), nýr sími (því minn er ónýtur), nýtt meik (því mitt er búið) og nýjar buxur (því ég á það skilið).

Annars er ég svaka dugleg, þegar búin að fara þrisvar í gymmið í vikunni (nb það er miðvikudagur í dag) og stefni á fjórða skiptið á morgun. Næ þó ekki að slá Mörtu út sem er gjörsamlega að missa sig í WorldClass. Ekki nóg með það að ég er svona dugleg í ræktinni heldur ætla ég á morgun og sunnudaginn á Þjóðó að læra og svo er ég að vinna föstudag og laugardag (allir að mæta á laugardaginn í nýju BT búðina í Kringlunni og heilsa upp á mig). Mér finnst ég allavega vera mjög dugleg þessa dagana. Áfram ég :!:


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 23:24:06 / valborg

Haha

Mér fannst þetta svo fyndið að ég fékk þetta "lánað" af síðunni hennar Hildar...


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 15:11:14 / valborg

aha

Ég finn nú á mér að vorið fer að nálgast. Öll þessi sól getur ekki verið tilviljun. Ég er allavega búin að draga upp  sólgleraugun til að nota í bílnum (en leðurhanskarnar og flísteppið eru enn nauðsyn, því miður).

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 16:15:07 / valborg

Febrúarbókhaldið

Jæja ég ákvað að lokum að setja inn bókhaldið mitt sem ég hélt núna í febrúar. Það er spurning hvort maður reyni að skera niður í einhverjum flokkum, þetta er sumt óþarflega mikið! Sérstaklega miðað við að ég bý nú í fríu fæði og húsnæði. En hér kemur þetta:

Matur:                  9281

Föt/fylgihlutir:      30281

Snyrtivörur:           7288

Inneign:                 1000

Áfengi:                 10200 (þar af 4500 í bænum)

Bensín:                  4000

Ýmislegt:              21040 (Baðhúskort, leigubíll, árshátíðarmiði o.fl.)

Samtals:               83190

En svo er það bara útborgun á morgun! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 01:35:00 / valborg

MySpace

Jæja ég er þá gengin til liðs við fjöldann og komin á MySpace... Mig má finna hérna

Endilega bætið mér á vinalistann ykkar, sem stendur á ég 2 vini og þar af er einn frá MySpace til að leiðbeina mér...


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 15:40:31 / valborg

árshátíð

Dagurinn í gær átti nú sínar upp- og niðursveiflur.  Byrjaði á því að fara í fitumælingu, en niðurstöður hennar voru ekki langt frá því að eyðileggja fyrir mér daginn. Kíkti á einhver námskeið á lagningadögum og krufði svo naggrís í líffræðiáfanganum mínum. Fór svo með Kristinu og Sólrúnu í Kringluna að kaupa mat og drykk fyrir kvöldið og svo óheppilega vildi til að við lentum í falinni myndavél. Mér hefði svosem fundist það fyndið ef ég hefði ekki verið sú eina sem fattaði það ekki strax og hefði ekki verið einsog umrenningur til fara (maður er ekkert að fara í sparifötin þegar maður á krufningu framundan). En ég held að þetta hafi ekkert verið nógu fyndið til að fara í sjónvarpið.

Jæja, svo borðuðum við hjá Kristínu og drukkum þar, það var mjög gaman, og skelltum okkur svo á árshátíðina á Hótel Sögu. Ég er nú ekki góð að áætla vegalengdir en ég mundi giska á að hún hafi verið svona 30 m á lengd og 4 m á breidd. Æ hún var allavega mjög löng. Biðum þar í um klukkutíma, allir að ryðjast og hrinda og traðka á spariskónum mínum. Komum svo inn og fatahengið var fullt (aldrei hef ég heyrt um það, hvað þá á svona stóru hóteli!) þannig að ég þurfti bara að gjöra svo vel að halda á pelsinum mínum. Gæslukonan reif veskið mitt þegar hún var að leita í því og þegar við komum upp datt það í sundur og dótið allt út um allt. Milljónamæringarnir voru ekki að gera góða hluti og þegar þarna var komið var ég orðin svo reið að ég réð ekki við mig og fór að væla. Kristínu blessuninni tókst þó að lokum að draga mig út á dansgólfið í DJ herberginu og náði ég að skemmta mér í svona klukkutíma. Eftir ballið var ég samt staðráðin í því að reyna að gera allt til að geta vorkennt mér meira og afþakkaði far í leigubíl og vildi frekar labba ein heim. Það voru mikil mistök, enda er ég núna ónýt í löppunum og bíð bara eftir lungnabólgunni eftir hálftíma göngu í bleytunni. En í heildina litið var þetta ágætt kvöld, þótt þetta hafi verið síðasta menntaskólaball sem ég mun fara á.


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 17:30:58 / valborg

...

Jájá elskurnar ég veit ég veit þetta var ömurlegt blogg hjá mér síðast! Hef bara ekkert að skrifa um þegar líf mitt er svona viðburðasnautt. Hins vegar verður nú fljótlega breyting til batnaðar, þar sem lagningadagar byrja í skólanum á miðvikudaginn auk þess sem þá er haldin árshátíð og ætla ég nú að skemmta mér sem best á henni. Helgin er vinnuhelgi EN ég stefni á djamm á laugardeginum þar sem Bogga hefur ákveðið að heiðra okkur með návist sinni og kíkja á klakann í rúma viku. Á sunnudaginn mun ég svo halda niðrí HÍ á skólakynningu og reyna að taka einhverja ákvörðun um hvað ég ætla að gera við líf mitt. Allavega hvað ég ætla að gera næsta haust.

Nýjustu fréttir í heilsumálum mínum eru þær að ég er orðin stoltur eigandi Baðhússkorts (eða Icelandic Spa and Fitness eins og sumir kjósa að kalla það) og er ég búin að fara einu sinni (og svo er ég auðvitað að fara á eftir). Ég er líka að taka þátt í einhverri rannsókn um heilbrigði og lífsstíl 19 ára unglinga svo ég er búin að ganga með hreyfimæli í viku og er að fara í fitumælingu á miðvikudaginn... það verður nú spennandi hvað kemur út úr því...

Ég hef hins vegar ákveðið að beila á því að setja febrúarbókhaldið hérna inná í lok mánaðarins eins og ég ætlaði. Mér finnst það of sjokkerandi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 17:32:59 / valborg

tilbreytingarlausir dagar...

Já það er ósköp lítið að gerast hjá manni núna. Gleður mig allavega að sjá sól útum gluggann. Ekkert djamm um helgina, er bara búin að vera að reyna að skrifa ritgerð um ljóðabók, það gengur svona upp og ofan. Lýk þessari færslu bara með einu ljóði úr bókinni minni, megi það verða ykkur innblástur eða dægrastytting.

Tóbak

Einn daginn þegar ég er að ganga upp göturnar í Albayzín í
Granada og er að rifja upp hvað göturnar heima eru breiðar
í samanburði, verður á vegi mínum maður sem vill stinga
mig með hníf.

Mér finnst óviðeigandi að segja það sem mér dettur í hug að
segja: „Þér eruð á rangri hillu,“ og svo framvegis, en er svo
heppinn að hann tekur af mér hin ósögðu orð og biður mig
um sígaretturnar sem ég geymi í innri jakkavasanum.

En þá, allt í einu, grípur mig sterk löngun til að reykja og
það verður að samkomulagi milli okkar að við reykjum tvær
sígarettur saman, hann fái pakkann að því loknu og láti vera
að stinga mig með hnífnum.

Bragi Ólafsson - Klink.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5